Sigga & Gunni í Barcelona!!

miðvikudagur, janúar 09, 2008

Spænsk símanúmer

Ekki örvænta þó að þið hafið ekki náð í okkur í síma, við erum nefnilega komin með spænsk númer..mitt er 620880905 og Gunna 620880831. Og svo muna 34 fyrir framan :)
Ég gat semsagt ekki notað gamla símakortið mitt þarf sem það hefði verið óvirkt svo lengi og einhver annar komin með það númer.
En allavega....þá er bara allt gott að frétta, við erum núna í íbúðinni hjá Sylvíu og Árna meðan við erum húnsæðislaus, erum búin að skoða 3 íbúðir, mis spennandi, langt í burtu, sóðalegar eða í dýrari kantinum...en ég hef engar áhyggjur af því ennþá. Ætlum að kíkja á eina eða 2 á eftir...erum orðin svoldið þreytt á að geta ekki komið okkur fyrir almennilega og hafa öll föt krumpuð í töskunni!!!
Gunnir byrjaði svo á verkefninu í dag og alveg nóg að gera meðan ég er eins og ekta túristi, labba um og tek myndir ;)
Og já er einmitt búin að sitja inn nokkrar myndir ...endilega tékkið á þeim
Bless í bili!!!!!!!!

6 Comments:

At janúar 10, 2008 11:15 f.h., Anonymous Nafnlaus said...



Gaman að sjá myndirnar af ykkur- kannast eð við köttinn þarna...!! Framandi að sjá svona sólarmyndir hér í myrkrinu ! Vona þið finnið íbúð sem fyrst, er ekki nóg af auglýsingum út um allt í skólanum?

 
At janúar 10, 2008 11:16 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Þetta var ég!! Nanna

 
At janúar 10, 2008 4:07 e.h., Blogger Sigga said...

Þetta virðist vera aðeins meira mál en við héldum...ég er alltaf jafn kærulaus og hugsa bara þetta reddast! Núna eru reyndar nokkrar sem við erum að pæla í en erum að bíða eftir svari með fyrstu íbúðina sem við sáum því okkur líst best á hana...fáum vonandi símtal í kvöld.
Það er fín íbúðin og við sleppum ágætlega með að þurfa ekki að borga neitt en vandamálið er kötturinn er hérna...ég þarf að "overdósa" á ofnæmistöflum til að haldast hér við!
Skoðuðum eina algjöra holu í gær þar sem bjuggu 7 með og einhverjir ógeðslegir hundar og reykjarmökkur sem lagði um alla íbúð...frekar óspennandi enda ekki skrítið að hún hafi verið mjög ódýr!!
En ég segi bara enn og aftur: Þetta reddast!! ;)

 
At janúar 11, 2008 1:46 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Hæ Sigga
ég er búin að vera að reyna að ná í þig eins og kreisí í dag og reyndi þetta númer en það kemur bara einhver símakona og ég skil ekki orð af því sem hún segir!
En allavega hafðu samband sem fyrst, það er eitthvað major fokk með flugin!

 
At janúar 12, 2008 12:06 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Jeij, þú heldur áfram með bloggsíðuna! Ákvað bara að tékka á síðunni til að sjá hvort að þú værir að nota hana, gaman gaman. Ég trúi ekki öðru en að þetta reddist með íbúðirnar, og það er gott að þið eruð farin úr krimmahverfinu.
Heyri í þér!
Tinna Rós

 
At janúar 12, 2008 12:12 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

aaa, þessi Silvía.. Var sko að skoða myndirnar.. Hélt áður að þú værir að tala um Silviu spænsku með djúpu röddina. Hélt að hún væri komin með íslenskan kærasta, hehe.
Besos!
Tinna

 

Skrifa ummæli

<< Home